Í þessari deild er mikil áhersla lögð á klassíska menntun í fornmálunum, latínu og grísku. Auk þess er kennsla í fornfræði og málvísindum, auk grunngreina máladeildar. Nemendur geta valið 5 einingar í bundnu vali. Í boði er danska, menningarsaga, sálfræði og viðskiptafræði.

Vikulegar kennslustundir í námsgreinum skiptast á eftirfarandi hátt:

Grein: Tímafjöldi í 5. bekk: Tímafjöldi í 6. bekk:
Íslenska 5 5
Enska 6 5
Franska, spænska eða þýska 6 5
Latína 6 6
Gríska 4 5
Saga 4
Stærðfræði 3
Íþróttir 2 1
Fornfræði 3 3
Málvísindi 3
Val 3
Samtals: 38 37

Brautir