Úrslit úr forkeppni framhaldsskólanna í eðlisfræði liggja fyrir. Landskeppnin í eðlisfræði fór fram 22. febrúar. Fjórtán nemendum er boðið að taka þátt í úrslitakeppninni sem fram fer í Háskóla Íslands helgina 19. og 20. mars næstkomandi.
Árangur nemenda skólans var mjög góður. MRingar eru í þremur efstu sætunum og af fjórtán nemendum eru sjö úr MR.
Árangur nemenda skólans var mjög góður. MRingar eru í þremur efstu sætunum og af fjórtán nemendum eru sjö úr MR.
- Arnór Hákonarson, 6.X, 1. sæti
- Atli Þór Sveinbjarnarson, 5.X, 2. sæti
- Árni Indriðason, 6.X, 3. sæti
- Konráð Þorsteinsson, 6.X, 7. sæti
- Aðalsteinn Axelsson, 6.Y, 9. sæti
- Björn Bjarnsteinsson, 5.Y, 10. sæti
- Matthías Páll Gissurarson, 6.Z, 12. sæti