loftsteinn: (hrapsteinn) steinn utan úr himingeimnum sem fellur inn í þyngdarsvið jarðar; [meteorite, bolide impact].


Agpalilik loftsteinninn fannst við Kap York í Norður-Grænlandi ásamt 6 öðrum sem líklega féllu saman til jarðar á forsögulegum tíma. Hann vó 20,1 tonn og var næststærstur Kap York loftsteinanna og sá fimmti stærsti sem fundist hefur á jörðinni.


Agpalilik steinninn var sagaður í sundur í rannsóknarskini og hlutinn sem sést hér á mynd er 15 tonn. Hann er að stærstum hluta úr járni 89%, nikkeli er 8% og brennisteini 2%.


Sjá um geimsteina.