kol: kolaðar leifar plantna að mestu frá kolatímabilinu ◊
fyrir 286 til 360 milljón árum.
Linkol [bituminous kol] eru dökkbrún eða svört með meira en 14% af rokgjörnum efnum og 80% kolefnisinnihald. Þau brenna með gulleitum loga og reyk. Orkuinnihald er 14-16 MJ kg-1.
Harðkol [anthracitkol] eru svört með málmgljáa og eru einu kolin sem flokka má sem myndbreytt berg. Í þeim er aðeins um 8% af rokgjörnum efnum og allt að 95% kolefnisinnihald. Þau brenna með bláum reyklausum loga. Orkuinnihald 15 MJ kg-1.