Jóladansleikur Skólafélagsins 2008
Mikill fjöldi miða hefur selst á jólaballið og því eru eftirfarandi atriði enn mikilvægari nú en áður svo hægt verði að koma öllum inn á ballið.
- Að nafn og kennitala sé aftan á miðanum
- Að skilríki séu höfð meðferðis sem og miðinn
- Að hafa ballmiða og skilríki tilbúin til að sýna dyravörðum
- Að koma á ballið á þeim tíma sem auglýstur hefur verið fyrir hvern árgang
Þeir sem bjóða gestum með sér vinsamlegast kynnið þeim þessi atriði
Húsið verður opnað kl. 22:00 og lokað kl. 23:30
Góða skemmtun og munið að ganga hægt um gleðinnar dyr og að bera virðingu fyrir ykkur sjálfum.
Gleðileg jól
María Björk forvarnarfulltrúi
Lára félagsmálafulltrúi