MR er Íslandsmeistari framhaldsskóla í skák 2010
Sveit Menntaskólans í Reykjavík varð Íslandsmeistari framhaldsskóla í skák 2010. Hún hlýtur því rétt á að tefla fyrir Íslands hönd á Norðurlandamóti framhaldsskóla sem fram fer í Danmörku í september.
Íslandsmót framhaldsskóla fór fram föstudaginn 26. mars og tefldu fjórar sveitir.
Úrslit urðu sem hér segir:
1. sæti: Menntaskólinn í Reykjavík A-sveit með 8 1/2 vinning.
2. sæti: Verzlunarskóli Íslands með 5 1/2 vinning.
3. sæti: Menntaskólinn í Reykjavík B-sveit með 5 1/2 vinning.
4. sæti: Menntaskólinn við Hamrahlíð með 4 1/2 vinning.

Í sigurliði M.R. eru:
1. b. Sverrir Þorgeirsson
2. b. Bjarni Jens Kristinsson
3. b. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
4. b. Paul Joseph Frigge
Í bronsliði M.R. B-sveitar eru:
1. b. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
2. b. Jóhannes Bjarki Tómasson
3. b. Mikael Luis Gunnlaugsson
4. b. Daníel Björn Yngvason
14. september 2009
Menntaskólinn í Reykjavík er Norðurlandameistari framhaldsskóla í skák
Skáksveit MR varð Norðurlandameistari framhaldsskóla en keppnin fór fram í Osló um helgina.
Við óskum þeim til hamingju en í skáksveitinni eru:
- Sverrir Þorgeirsson
- Bjarni Jens Kristinsson
- Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- Paul J. Frigge
Sveitin sigraði norsku sveitina 3-1, sem þjálfuð er af Simen Agdestein, í lokaumferðinni þrátt fyrir að vera stigalægri á öllum borðum og náði þar með efsta sætinu af gestgjöfunum.
Sverrir Þorgeirsson og Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir unnu og Bjarni Jens Kristinsson og Paul Frigge gerðu jafntefli.
Frétt Skáksambandsins
Heimasíða mótsins í Noregi
27. apríl 2009
Menntaskólinn í Reykjavík er Íslandsmeistari framhaldsskóla í skák
Skáksveit skólans, sem skipuð er þeim
- Sverri Þorgeirssyni (5.Z)
- Ingvari Ásbjörnssyni (4.T)
- Hallgerði Helgu Þorsteinsdóttur (3.C)
- Bjarna Jens Kristinssyni (4.X)
- Paul Joseph Frigge (4.M)
- Sigríði Björgu Helgadóttur (3.I),
varð Íslandsmeistari framhaldsskólasveita í skák föstudaginn 24. apríl, eftir sigur á sveit MH. Með sigri þessum hefur sveit MR öðlast þátttökurétt á Norðurlandamóti framhaldsskólasveita sem áætlað er að halda í Noregi í haust.