Menntaskólinn í Reykjavík
Skólinn Brautir Námskrá Námsgreinar Félagslíf Bekkir Fréttir og tilk.

Skólafélagið
Framtíðin
Foreldrafélagið
Nemendasamband
Stúdentar:
1985
1982
1981
1980
1978
1976
1972
1959

Stúdentar MR 1981.

Uppfært 17..05.2006

Kæru samstúdentar.

Nú liggur það fyrir að við verðum 25 ára stúdentar í vor og verður nokkuð sér til gamans gert að því tilefni. Á þessari síðu verða fréttir af undirbúningnum og eru allir hvattir til að heimsækja síðuna sem oftast.

GJÖF Í SELSSJÓÐ

Tuttugu og fimm ára stúdentar ætla að gefa í Selssjóð. Selið hefur verið í lamasessi undanfarin ár. Það ætti að vera sérstakt hagsmunamál þeirra sem eiga börn í M.R. eða gætu einhvern tíma átt börn þar, að þau komist í Selið og læri að skemmta sér án áfengis, ólíkt okkur. Hver gæti til dæmis gefið 5.000 krónur, en annars eftir efnum og ástæðum. Greiða skal inná reikning:

0137-26-20001, kt. 0905622079. Stefnt var að því að safna hálfri milljón
króna. Þegar hefur á annan tug þúsunda safnast.


VIÐEYJARFERÐ

Farið verður á uppstigningardag, 25. maí.

Kl. 2: Lagt af stað úr Sundahöfn. Verð 750 á manninn báðar leiðir, ef farið er aftur í Sundahöfn( sjá síðar).
Um kl. 3-4: Leiðsögn um Austureyna.
Milli kl. 5 og 6 verður grillað lambakjöt og borið fram með meðlæti í skála (Nausti). Verð: 2500 á manninn, rukkað á staðnum. Drykkjarföng: Hver sér um sig og fer í ríkið eða annað. Athugið að ekki eru vínveitingar á staðnum.

Björgúlfur Ólafsson talar undir borðum, ef hann fæst þá til þess. Einhver hæfilegur söngur líka.

Munið að vera þokkalega skóuð og hlýlega klædd.

Siðasta regluleg ferð inn í Sundahöfn er klukkan 7:15, en við munum vera með sérstaka ferð fyrir okkur líklega milli 8 og 9. Hugmyndin er að sigla inn í Reykjavíkurhöfn, þannig að þeir sem eru í stuði geti spjallað áfram. Það kostar 500 krónur aukalega á manninn, ef nógu margir eru með.

Stúdentafagnaður Nemendasambands MR 2006

 

Stúdentafagnaðurinn verður haldinn laugardaginn 27. maí nk. í Súlnasal Hótels Sögu. Húsið opnar kl. 19 og borðhald hefst kl. 20.

 

Nemendur spila á fiðlu og píanó við innganginn.

Veislustjóri: Bryndís Schram

Fulltrúar 25 ára og 50 ára stúdenta og inspector scholae flytja ávörp.

Fjöldasöngur.

Dans

 

Matseðill:

Laxakonfekt

Heilsteiktar nautalundir með sveppakartöfluflögum og raunvínsgljáa

Súkkulaðistigi

 

Jafnframt verður boðið upp á grænmetismatseðil fyrir þá sem þess óska.

 

Miðaverð

Miðinn á stúdentafagnaðinn kostar kr. 5.000 fyrir nýstúdenta og kr. 6.500 fyrir júbilanta.

Ef komið er eftir borðhald kostar miðinn kr. 2.500.

 

Miðasala fer fram 8.–19. maí kl. 09–17 á skrifstofu Hótels Sögu,

2. hæð t.h., gengið inn Þjóðarbókhlöðumegin.  Einnig er hægt að panta og greiða fyrir miðana með símgreiðslu í síma: 525-9950.  Tengiliðir vegna miðasölu eru: Trausti Hafsteinsson, netfang: trausti.hafsteinsson@RadissonSAS.com og Hafsteinn Egilsson, netfang: h.egilsson@radissonsas.com

 

Nýstúdentar og kennarar geta keypt miða á skrifstofu MR.

Við miðakaup er æskilegt að láta vita úr hvaða júbilantahópi viðkomandi er (25 ára stúdent, 50 ára stúdent o.s.frv.) m.a. vegna niðurröðunar hópanna í salnum.

 

Þess er vænst að þeir sem fara fyrir júbilöntum í ár láti Svein Snæland, síma

696 9533 (sveinn@nordural.is) vita um áætlaðan fjölda þátttakenda í stúdentafagnaðinum fyrir 8. maí nk. Þá er hægt að hafa samband við Sigríði Vilhjálmsdóttur í síma 864 2217 ( nemendasambandid@mr.is ) ef óskað er frekari upplýsinga.

Útskrift.

Skólanum verður slitið föstudaginn 26. maí kl. 14:00 í Háskólabíói og er júbílöntum velkomið að mæta, en þar mun Sigurður Jóhannesson halda tölu f.h. 25 ára stúdenta.

Myndir.

6-AC

6-BD