Heimspeki
3 tímar á viku
Námslýsing
Í þessum áfanga fá nemendur að kynnast nokkrum af helstu viðfangsefnum heimspekinnar í gegnum tíðina. Lögð verður áhersla á að nemendur glími sjálfir við sígildar spurningar heimspekinnar. Þótt leitað verði fanga hjá fyrri tíma heimspekingum verður ekki lögð sérstök áhersla á að gefa nemendum sögulegt yfirlit yfir heimspekinga sögunnar. Þess í stað miðast kennslan við að nemendur fáist við þau vandamál sem eru efst á baugi hjá heimspekingum dagsins í dag. Nauðsynleg færni til að fást við hugmyndir heimspekinganna er rökleikni og mikilvægt markmið áfangans er að efla rökræðu- og samskiptahæfni, bæði í ræðu og riti.
Meðal þeirra spurninga sem leitað verður svara við eru „Hvað eru góð rök“, „Hvað er til?“, „Hvernig öðlumst við þekkingu?“, „Hvað er sannleikur“ og „Á meirihlutinn að ráða?“. Sérstök áhersla verður svo lögð á vísindaheimspeki og siðfræði. Þannig ættu nemendur að öðlast dýpri skilning á viðfangsefnum í sínu eigin námi sem og á hversdagslegum athöfnum sínum.
Lögð verður áhersla á að nemendur fái sjálfir tækifæri til að tjá sig um námsefnið. Nemendur verða hvattir til að taka þátt í umræðum í hefðbundnum kennslutímum, og þess utan verða sérstakir umræðutímar þar sem nemendur ræða sín á milli um heimspekileg álitamál.
Markmið
Markmið námskeiðsins er tvíþætt:
Kunnátta: Nemendur þekki helstu svið heimspekinnar, skilji afstöðurnar sem þar eru mest áberandi og geti gert grein fyrir rökunum sem liggja þeim til grundvallar.
Hæfni: Nemendur þjálfist í framsetningu á heimspekilegum hugmyndum, lestri á heimspekitextum, og öðlast getu til að komast að sjálfstæðri en rökstuddri niðurstöðu í heimspekilegum álitamálum.
Uppfært 31. 8. 2007