mr.is >> Foreldrafélagið
Foreldrafélag Menntaskólans í Reykjavík

Stjórn 2012-2013:
Magnús Gottfreðsson, formaður, magnusgo hjá landspitali.is
Jóhann Viðar Ívarsson, dofraberg hjá gmail.com
Ketill Berg Magnússon, ketill hjá gmail.com
Ingunn Árnadóttir, ingunnga hjá lsh.is
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson,
Kristín Sigurðardóttir,
Sæmundur Þorsteinsson.

Orðsending til allra foreldra nemenda í MR

Foreldrafélag MR vill stuðla að góðum samskiptum við alla foreldra nemenda í MR. Til að svo megi verða óskar félagið eftir að foreldrar sendi skólanum ný og breytt netföng og láti einnig nafn nemenda og bekkjar getið.
Netföngin sendist til Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Um foreldrafélagið

Sameiginlegt markmið foreldra og skólans er að skila krökkunum okkar eins vel undir búnum undir lífið að þessum fjórum árum liðnum eins og kostur er.  Foreldrafélagið starfar með skólanum sem tengiliður við foreldra.  Það stendur fyrir kynningarfundum um ýmis mál sem varða foreldra.
Undanfarin misseri höfum við verið með kynningar- og umræðufundi um samskipti foreldra og unglinga og um þær hættur og freistingar sem liggja á vegi krakkanna okkar, og þá sérstaklega um vímuefni.  Einnig vinnum við með skólanum að kynningum á starfsemi skólans fyrir nýnema og að kynningum á námsvali nemenda í 3. og 4. bekk.
Félagið rukkar engin félagsgjöld og öll vinna er unnin í sjálfboðavinnu.
Við erum í sambandi við foreldra um tölvupóst og biðjum foreldra að láta okkur vita ef breytingar verða á netfangi.

Tölvupóstlisti

Við viljum geta látið foreldra vita af viðburðum í starfsemi félagsins með tölvupósti.  Við höfum safnað tölvupóstföngum en eigum slíkt ekki fyrir alla foreldra.  Því biðjum við ykkur sem hafa áhuga á að fá upplýsingar um starfsemi félagsins að senda okkur nafn, tölvupóstfang, nafn nemanda og bekk til Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .  Þessi póstlisti verður ekki notaður fyrir aðrar útsendingar en frá félaginu og skólanum.

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 13. desember 2012 10:29
 
Last month Maí 2013 Next month
    S M Þ M F F L
week 18             1 2 3 4
week 19 5 6 7 8 9 10 11
week 20 12 13 14 15 16 17 18
week 21 19 20 21 22 23 24 25
week 22 26 27 28 29 30 31